SKÝRSLA
Tilkynnið um ósæmilega hegðun Lesa meira...
European Commission
EduMedia 2008
 
Flokkar netleikja
Leikir og tegundir leikja þróast hratt og því erfitt að tala um þá almennt en sem stendur eru fjórar megintegundir leikja spilaðar á netinu. Hver þeirra notast ekki eingöngu við ólíka tækni heldur er breytileikinn einkum fólginn í því hvernig þátttaka neytenda þeirra er, spilatími o.s.frv. Í stuttu máli eru þessar tegundir:
Smáleikir / vafraleikir
Leikirnir eru beintengd afbrigði af venjulegum spilakassa- spilaborðs- eða stafrænum leikjum sem eru yfirleitt ókeypis og birtast annað hvort á vefsíðum eða leikjagáttum sem reknar eru með auglýsingum. Þessir leikir eru einkum eins-manns leikir og leikmaðurinn hverfur ekki í sýndar- eða söguheim. Dæmi um þetta eru Spacewar, PacMan, og spilastokkaleikir eins og Solitaire og Blackjack. Þessar gerðir netleikja eru algengastar.
Auglýsingaleikir
Auglýsingaleikir eru þeir leikir sem miða að því að kynna ákveðna vöru, fyrirtæki eða afstöðu til stjórnmála. Yfirleitt er vara fyrirtækis áberandi í leiknum sem er annað hvort spilaður beintengt á vefsíðu fyrirtækisins eða hægt að hala niður þaðan. Þessir leikir eru með sterk tengsl við kynningarherferðir með aðstoð veira sem reyna að dreifa út vitund um vöruna eða fyrirtækið með orðrómi, tölvupósti og með því að birtast á bloggsíðum.
Nettengdir leikir
Þessir leikir fara að öllu eða einhverju leyti fram beintengt, yfirleitt á einmenningstölvu en í auknum mæli í gegnum internetaðgang með leikatölvu. Vinsældir þeirra hafa aukist með auknum internetaðgangi og útbreiðslu breiðbandstækninnar. Flestar tegundir leikja tilheyra þessum flokki en megináhersla þeirra er á hernaðarleiki.

Leikir þar sem leikmenn eru vopnaðir byssum einkennast af því að heimurinn sem birtist á skjánum er séður með augum leikmannsins. Leikmenn geta barist á móti hver öðrum eða í liðum. Einn vinsælast leikurinn í þessum flokki er Doom. Hernaðartæknileikir í rauntíma byggja á útsjónarsemi, áætlanagerð og eru tölvugerð þróun hefðbundinna stríðsleikja. Nettengdir leikir með marga þátttakendur eru einnig mjög vinsælir í ýmsum íþróttagreinum svo sem kappakstri og fótbólta.
Fjölþátttökuleikir
Fjölþáttökuleikir eru ólíkir öðrum nettengdum leikjum í tveimur mikilvægum atriðum: mikill fjöldi leikmanna sem tekur þátt í leiknum á sama tíma og viðvarandi eðli leikjanna (þ.e. leikurinn heldur áfram hvort sem tiltekinn leikmaður tekur þátt í honum eða ekki).

Þessir leikir bjóða upp á flókinn þrívíðan heim þar sem eru þúsundir leikmanna. World of Warcraft frá Blizzard Entertainment/Vivendi Game er með rúmlega 6 milljón áskrifendur (1 milljón í Evrópu og rúmlega 1,5 milljon í Kína). Everquest, sem var einu sinni leiðandi á þessum markaði, er með um 500.000 áskrifendur og Ultima Online með 250.000.

Hlutverkaleikir þar sem þátttakendur fara í hlutverk ímyndaðra persóna og skapa saman eða fylgja söguþræði er helsta tegundin í þessum flokki. Þessi beintengdu netheimar bjóða upp á nálgun í leiknum þar sem allt getur gerst og er hinn félagslegi og samfélagslegi þáttur þeirra áberandi. Af þessum ástæðum eru þessir leikir kallaðir fjölþátttöku hlutverkaleikir (MMORPG).