SKÝRSLA
Tilkynnið um ósæmilega hegðun Lesa meira...
European Commission
EduMedia 2008
 
Hvað eru PEGI Online öryggisreglur?
PEGI Online öryggisreglurnar voru þróaðar af tveimur sérstökum vinnuhópum sem beðnir voru að skilgreina lágmarksvernd sem veita ætti börnum og ungmennum í nettengdum tölvuleikjum. Allir sem undirrita þessar reglur skuldbinda sig til að gera ráðstafanir til að banna óviðeigandi efni á vefsetrum sínum og tryggja góða hegðum leikmanna. Þessu fylgir að þeim er veitt leyfi til að nota merki PEGI Online þegar viðkomandi leikur hefur verið skráður í PEGI-flokkunarkerfinu.

Hægt er að hala niður megintexta reglnanna hér að neðan. Helstu ákvæði sem þeir sem undirrita reglurnar skuldbinda sig til að fylgja eru:
Aldursflokkun efnis leikja
Netþjónustan mun eingöngu innihalda efni sem hefur verið aldursflokkað með viðeigandi hætti þ.e. samkvæmt kerfi PEGI eða öðru viðurkenndu evrópsku kerfi eins og – en ekki takmarkað við – breska kvikmyndaeftirlitinu (BBFC) og þýska tölvuleikjaeftirlitinu (USK).
Skilvirkt tilkynningaferli
Leyfishafar PEGI Online munu tryggja að skilvirk tilkynningaferli séu til staðar til að leikmenn geti tilkynnt um óæskilegt efni á sérhverjum tengdum vefsetrum sem bjóða netþjónustu og eru á þeirra ábyrgð.
Óréttlætanlegt efni fjarlægt
Leyfishafar PEGI Online skulu starfa að því að tryggja að netþjónusta sem er á þeirra ábyrgð sé laus við efni sem er ólöglegt, særandi, ber vott um kynþáttafordóma, er niðurlægjandi, spillandi, ógnvekjandi, ósæmilegt eða gæti haft varanleg áhrif á þroska barna og ungmenna.
Heilsteypt stefna um friðhelgi
Sérhver leyfishafi PEGI Online sem safnar persónulegum upplýsingum á netinu um áskrifendur skal viðhafa heilsteypta og virka stefnu um friðhelgi í fullu samræmi við öll gildandi lög Evrópusambandsins og landslög um persónuupplýsingar.
Samfélagsleg viðmið áskrifenda að netleikjum
Leyfishafar PEGI Online skulu fella í samning við áskrifendur sína á netinu ákvæði sem fela það í sér að ákrifendum er bannað að leggja til í leikinn efni eða hegðun sem er ólöglegt, særandi, ber vott um kynþáttafordóma, er niðurlægjandi, spillandi, ógnvekjandi, ósæmilegt eða gæti haft varanleg áhrif á þroska barna og ungmenna.
Ábyrg auglýsingastefna
Eftirfarandi reglur eiga við:
allar auglýsingar skulu gefa rétta mynd af innihaldi og efni vörunnar sem auglýst er og þegar það er hægt skal birt flokkun leiksins.
allar auglýsingar skulu gerðar með tillitsemi við almenning.
Engin auglýsing skal innihalda efni sem er líklegt til að vera alvarlega eða almennt særandi.
leyfishafar skulu ekki sérstaklega auglýsa hugbúnaðarefni til afþreyingar sem flokkað er 16+ eða 18+ fyrir neytendum sem hafa ekki náð tilskildum aldri.
leyfishafar skulu tryggja að viðbótar- eða aðrar vörur sem seldar eða auglýstar eru með grunnvöru skulu vera við hæfi þeirra sem sala grunnvörunnar beinist að.
leyfishafar skulu upplýsa almenning almennt um styrktaraðila og/eða kynningarátak sem tengist einhverri netþjónustu.
POSC
POSC.pdf [121 KB]