SKÝRSLA
Tilkynnið um ósæmilega hegðun Lesa meira...
European Commission
EduMedia 2008
 
Vernd barna og ungmenna
Marga vídeóleiki sem keyptir eru á diski er hægt að spila við annan leikmann eða leikmenn með tölvu eða leikjastjórnborð með internettengingu. Ennfremur eru sífellt fleiri vefsetur sem bjóða upp á að spila hreina netleiki á internetinu, annað hvort einn eða við aðra. Þessir leikir eru allt frá einföldum spilakassaleikjum til fjölþátttöku hlutverkaleikja eða svokallaðra MMORPG's þar sem fjöldi leikmanna getur hlaupið á þúsundum á sama tíma í einum netleik. Nánari upplýsingar um mismunandi netleiki er að finna hér að neðan.

Margir slíkir leikir styðja sýndarsamfélög þar sem leikmenn eru frammi fyrir hættum sem fylgja því að vera í sambandi í rauntíma við aðra óþekkta leikmenn.

Þessar hættur eru meðal annars:
Innihald sem verður til á meðan leikurinn er spilaður sem gæti verið ekki við hæfi barna og ungmenna og ekki í samræmi við flokkun sem leikurinn hefur fengið.
Ákveðin hegðun leikmanna gæti ekki hæft yngri aldursflokkum. Dæmi um þetta eru óviðeigandi eða ljótt orðbragð, yfirgangur í leikjum þar sem fram fara samskipti með textum, raddskilaboðum eða myndbandsupptökum, ódrengileg hegðun eins og svindl og áhrif eða ofbeldi gagnvart öðrum leikmönnum.
Brot á friðhelgi. Netleikir gætu hvatt ungmenni til að stofna til kynna, deila persónulegum upplýsingum eða jafnvel að hitta óþekkta leikmenn utan leiks.
Tenglar á vefsíður með efni sem ekki hæfir ungmennum yngri en aldurflokkun leiksins segir til um.
ÖRYGGISATRIÐI FYRIR FORELDRA
Varið börn við því að láta örðum leikmönnum í té persónulegar upplýsingar.
Varið börn við því að hitta leikmenn nema í fylgd foreldris.
Fylgist með því hvað börn gera á netleikjasíðum.
Hvetjið börn og minnið þau á að tala um atvik eins og yfirgang, ógnvekjandi eða ljótt orðbragð, birtingu óviðurkvæmilegs efnis eða boð um að hittast utan leiksins.
Tilkynnið um ósæmilega hegðun með því að nota eyðublaðið á þessu vefsetri eða sérstakar kvörtunarleiðir á netleikjasíðum.
Rjúfið samskiptin eða breytið auðkenni barnsins á netinu ef eitthvað í leiknum þróast þannig að það veldur óþægindum.
ÖRYGGISATRIÐI FYRIR BÖRN
Slæm hegðun, ljótt orðbragð eða svindl er EKKI í lagi! Þú getur lokað fyrir aðgang leikmanns, tilkynnt hann til leikjaveitandans eða látið foreldra þína vita.
Segðu foreldrum þínum strax frá því ef þú rekst á upplýsingar sem þér finnst óþægilegar.
Gefðu ekki upp persónulegar upplýsingar um þig eins og hvar þú átt heima, símanúmer, mynd,…
Samþykktu aldrei að hitta einhvern sem þú kynnist á netinu nema að ráðfæra þig fyrst við foreldra þína.