Hvað eru nettengdir leikir?
Nettengdur leikur er skilgreindur sem stafrænn leikur sem krefst sítengingar við netið til að hægt sé að spila hann. Í því felast ekki eingöngu leikir sem fara fram á internetinu heldur einnig þeir sem spilaðir eru á leikjastjórnborðum, í farsímum eða á jafningjaneti.
Xbox Live frá Microsoft var upphafið að því að tölvuleikir fóru að tengjast netinu. Xbos 360 gerir leikmönnum ekki aðeins kleift að spila saman heldur einnig að eiga raddsamskipti með heyrnartóli. PlayStation 2 og nýjustu lófatölvur (DS frá Nintendo og PSP frá Sony) gera mörgum leikmönnum kleift að spila í einu með WiFi tengingu. Nýjar kynslóðir tölva eins og Playstation3 frá Sony og Wii frá Nintendo gera mögulega sítengda þátttöku í leikjum á internetinu.
Farsímaleikur er vídeóleikur sem leikinn er í farsíma, snjallsíma eða lófatölvu. Hægt er að fara í farsímaleiki með samskiptatækninni sem er í tækinu sjálfu, svo sem textaskilaboð (SMS). Hins vegar eru leikir sem halað er niður með fasíma í gegnum fjarskiptanet þjónustuaðila algengari og þá er spilað með því að nota leikjatækni sem er í sjálfum búnaðiunum. Jafningjanet byggja á bandbreidd og tölvum í stað netþjóna sem styðja leiki til að gera gera mörgum kleift að spila í einu.
Leikir sem ekki gera kröfu um sítengingu við netið en nota internetið til þess að senda árangurstölur, hala niður atriðum í leiki eða senda upplýsingar eru ekki taldið með í skilgreiningu okkar.