SKÝRSLA
Tilkynnið um ósæmilega hegðun Lesa meira...
European Commission
EduMedia 2008
 
Hvað er PEGI Online?
Í rúmlega þrjú ár hefur PEGI aldursflokkunarkerfið (Pan European Games Information) veitt foreldrum í Evrópu ítarlegar leiðbeiningar um hæfi innihalds leikja fyrir ungmenni. PEGI-kerfið veitir foreldrum auðskiljanlegar og áreiðanlegar upplýsingar í formi merkinga með aldursflokkun og efnislýsingu á umbúðum leikja þannig að þeir geti tekið upplýstar ákvarðanir við kaup á leikjum.

PEGI Online er viðbót við PEGI-kerfið. Markmið þess er að veita evrópskum börnum og ungmennum betri vörn gegn innihaldi netleikja sem ekki er við þeirra hæfi og fræða foreldra um hættur og mögulega skaðsemi sem einkennir þetta umhverfi. PEGI Online byggir á eftirfarandi grunneiningum:
PEGI Online öryggisreglur (POSC) og rammasamningur sem allir þátttakendur undirrita
PEGI Online merki sem leyfishafar mega nota
sérstakt vefsetur fyrir umsækjendur og almenning
óháð stjórn, ferli fyrir rágjöf og úrlausn ágreinings
Leyfi til að nota PEGI Online merkið veitir PEGI Online framkvæmdastjórn sérhverjum þjónustuaðila netleikja sem stenst kröfur sem kveðið er á um í PEGI Online öryggisreglunum. Kröfurnar eru meðal annars skylda um að á vefsetrinu sé ekkert ólöglegt eða ósæmilegt innihald sem notendur búa til og óæskilegar krækjur svo og aðgerðir til að vernda ungmenni sem taka þátt í netleikjum og persónuvernd.

PEGI Online merkið birtist annað hvort á umbúðum leiksins ef hann er seldur á diski eða á vefsetrinu sjálfu. Merkið skal upplýsa um að leikinn er hægt að spila á netinu en einnig að tiltekinn leikur sé undir eftirliti aðila sem er umhugað að vernda börn og ungmenni.

Leikir sem ekki fara fram á netinu heldur á tölvum eru að sjálfsögðu aldursflokkaðir samkvæmt gildandi PEGI-kerfi eða öðrum viðurkenndum evrópskum flokkunarkerfum sem til staðar eru.
ATHUGASEMD TIL FORELDRA
Gangið úr skugga um að PO merkið sé á umbúðum leikja og á vefsíðum sem bjóða netleiki.